George S. Patton
George Smith Patton | |
|---|---|
George Patton sem aðstoðarhershöfðingi árið 1943. | |
| Fæddur | 11. nóvember 1885 |
| Dáinn | 21. desember 1945 (60 ára) |
| Störf | Hermaður |
| Maki | Beatrice Banning Ayer (g. 1910) |
| Börn | Beatrice Smith, Ruth Ellen og George Patton IV |
| Foreldrar | George Smith Patton eldri & Ruth Wilson |
| Undirskrift | |
George Smith Patton yngri (11. nóvember 1885 – 21. desember 1945) var bandarískur hershöfðingi sem stýrði sjöundu herdeild Bandaríkjahers á Miðjarðarhafs- og Evrópuvígstöðvunum í seinni heimsstyrjöldinni. Hann er þó þekktastur fyrir að stýra þriðju herdeild Bandaríkjahers í Frakklandi og Þýskalandi eftir innrásina í Normandí í júní árið 1944.
Æviágrip
[breyta | breyta frumkóða]Patton fæddist árið 1885 og var af hermannaættum. Ættingjar hans höfðu verið hermenn bæði í her Bandaríkjanna og her Suðurríkjasambandsins í þrælastríðinu. Patton gekk í herskóla Virginíu og útskrifaðist frá bandaríska herháskólanum West Point árið 1909.[1] Hann æfði skylmingar og hannaði eigin sverðtegund sem var kölluð „Patton-sverðið“ eftir honum. Patton keppti á sumarólympíuleikunum árið 1912, meðal annars vegna skylmingahæfni sinnar. Hann komst fyrst í hernaðarátök árið 1916 þegar hann tók þátt í misheppnuðum leiðangri til Mexíkó til að handsama Pancho Villa. Hann gekk síðan til liðs við hina nýstofnuðu skriðdrekadeild Bandaríkjahers og barðist með henni í fyrri heimsstyrjöldinni. Patton særðist í Frakklandi seint í stríðinu.
Á millistríðsárunum lék hann lykilhlutverk í þróun brynvarinna herfarartækja og gegndi ýmsum embættum í hernum víðs vegar um Bandaríkin. Hann kleif upp metorðastigann og var orðinn foringi annarrar bryndeildar Bandaríkjahersins þegar Bandaríkin gengu inn í seinni heimsstyrjöldina.
Patton stýrði innrás bandarískra hermanna í Casablanca í Torch-aðgerðinni árið 1942. Þar var honum talið til tekna að hafa stappað stálinu í bandaríska hermenn sem höfðu glatað baráttuandanum. Patton stýrði sjöundu herdeild Bandaríkjahers í innrás bandamanna í Sikiley, en þar var hann fyrsti herforingi bandamanna sem náði til Messinu.[2] Patton vakti hneyksli almennings eftir að hann gaf tveimur hermönnum í sprengjulosti kinnhest og var tímabundið leystur frá störfum. Patton sneri aftur á vígvöllinn sem foringi þriðju herdeildarinnar í júní árið 1944 eftir innrásina í Normandí og stýrði áhlaupi bandarískra bryndeilda frá París til bakka Rínarfljóts. Hann veitti síðan bandarískum hermönnum liðsauka við Bastogne í Ardennasókninni og hafði ráðist með her sinn inn í Þýskaland undir lok stríðsins.[3]
Eftir stríðið varð Patton herstjóri Bæjaralands á meðan á hernámi bandamanna stóð en var leystur frá störfum fyrir að gera lítið úr tilraunum til þess að uppræta nasisma í Þýskalandi. Hann stýrði fimmtándu herdeild Bandaríkjahers í rúman mánuð. Patton lést í Þýskalandi þann 21. desember 1945 vegna meiðsla sem hann hlaut í bílslysi tólf dögum fyrr.
Orðspor
[breyta | breyta frumkóða]Litríkur persónuleiki Pattons og afrek hans sem herforingi gerðu hann frægan og dáðan en hann varð jafnframt umdeildur vegna harkalegrar orðræðu sinnar. Hann varð vinsæll vegna lífsspeki sinnar, sem fólst í því að veita forystu frá fremstu víglínu, og með því að blása hermönnum eldmóð í brjóst með klúrum ræðum.[4] Leiðtogar bandamanna voru ekki á sama máli um hæfni Pattons og ágæti hans en andstæðingar hans meðal Þjóðverja báru mikla virðingu fyrir honum. Árið 1970 kom út vinsæl kvikmynd um Patton sem vann til Óskarsverðlauna sem besta myndin það ár og festi Patton í sessi sem nokkurs konar alþýðuhetju í Bandaríkjunum.
Patton var þekktur fyrir að trúa á endurholdgun. Hann trúði því að í fyrri lífum sínum hefði hann barist í mörgum af þekktustu stríðum mannkynssögunnar.[5]
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „George S. Patton“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 29. mars 2018.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Patton hershöfðingi“. Ný vikutíðindi. 14. janúar 1972. bls. 6–7; 5.
- ↑ „Patton hershöfðingi – Sigurvegarinn á Sikiley“. Alþýðublaðið. 22. ágúst 1943. bls. 3.
- ↑ „Nýjar sögur um Patton hershöfðingja“. Morgunblaðið. 16. mars 1945. bls. 7–8.
- ↑ „Þjóðsagnapersónan Patton hershöfðingi, talar til hermanna sinna“. Ný vikutíðindi. 15. júní 1973. bls. 6–7.
- ↑ Karl F. Hollenbach (1. júní 1990). „Patton, mörg líf, margar orrustur“. Morgunn. bls. 38–46.