1375
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1375 (MCCCLXXV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Veturinn var harður, kallaður Hvalavetur, og búpeningur að falli kominn á langaföstu. Norðlendingar hétu þá á Guðmund biskup góða að gefa eina alin af hverju hundraði og senda í páfagarð. Batnaði þá tíðin og enginn fjárfellir varð.
- Árnesingaskrá fyrri eða Skálholtssamþykkt gerð í Skálholti af bestu mönnum og almúga. Þar var meðal annars kveðið á um að Íslendingar vildu engar utanstefningar hafa af hálfu konungsvaldsins og þess krafist að lögmenn og sýslumenn skyldu vera íslenskir menn.
- Ormur Snorrason lét af embætti lögmanns sunnan og austan.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Þorgautur Jónsson, hirðstjóri.
- Andrés Gíslason úr Mörk, hirðstjóri, drukknaði á leið til landsins frá Noregi.
- Skúli Þórðarson sýslumaður, drukknaði á leið til landsins frá Noregi.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 1. maí - Þriðja stríð Ungverja og Ottómana hófstt þegar Lajos konungur Ungverja hélt inn í Vallakíu með 40.000 menn en Vladislás leiðtogi Vallakíu hafði snúist á sveif með Ottómönum.
- 27. júní - Hundrað ára stríðið: Englendingar glötuðu svo miklu landi í hendur Frakka að þeir héldu aðeins eftir strandbæjunum Calais, Bordeaux og Bayonne samkvæmt samningi kenndur við Brugge.
- 24. október - Margrét Valdimarsdóttir varð ríkisstjóri Danmerkur við lát föður síns, Valdimars atterdag. Næsta vor varð svo fimm ára sonur hennar, Ólafur Hákonarson konungur Danmerkur. Hann varð konungur Noregs 1380.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Johannes Abezier, leiðtogi Þýsku riddaranna (d. 1424).
- (líklega) - Gozewijn Comhaer, Skálholtsbiskup (d. 1447).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 24. október - Valdimar atterdag, Danakonungur.
- 21. desember - Giovanni Boccaccio, ítalskur rithöfundur (f. 1313).