1382
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1382 (MCCCLXXXII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Andrés Sveinsson hirðstjóri kom til landsins og lét sverja Ólafi 4. Hákonarsyni land og þegna.
- Mikael varð Skálholtsbiskup.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 20. janúar - Ríkharður 2. Englandskonungur gekk að eiga Önnu af Bæheimi.
- 3. mars - Mailottin-fjöldamorðin hófust: Kaupmenn í París myrtu um 30 skattheimtumenn Karls 6. Frakkakonungs á markaði. Óeirðir brutust út og var ráðist á kirkjur, stofnanir og heimili aðmanna. Fangelsi voru opnuð og föngum sleppt út.
- 9. apríl - Mingveldið lauk landnám Yunnan.
- 10. ágúst - Ferdínand konungur Portúgals og Jóhann konungur Kastilíu skrifuðu undir friðarsamning og enduðu stríð sitt og Portúgal gekk Frakklandi og Kastilíu á hönd í hundrað ára stríðinu.
- 23. ágúst - Tokhtamysh, khan Gullnu hordunnar hóf umsátur um Furstadæmið Moskvu. Síðar sveik hann loforð um frið þegar borgarhliðin voru opnuð og lét myrða, ræna og nauðga íbúum.
- 17. september - María dóttir Loðvíks 1. Ungverjalandskonungs varð drottning Ungverjalands og Póllands eftir dauða föður síns en Pólverjar felldu sig ekki við unnusta hennar, Sigmund, síðar keisara, og völdu Heiðveigu yngri systur Maríu sem þjóðhöfðingja sinn. Hún var krýnd 1384 sem Heiðveig konungur.
- Jakob 1. varð konungur Kýpur.
- Tyrkir lögðu undir sig Sófíu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Eiríkur af Pommern konungur yfir Kalmarsambandinu (d. 1459).
- Friðrik 4., hertogi af Austurríki (d. 1439).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 12. maí - Jóhanna 1. Napólídrottning, var myrt (f. 1327).
- 13. ágúst - Elinóra af Aragóníu, Kastilíudrottning, kona Jóhanns 1. (f. 1358).
- 10. september - Loðvík 1. konungur Ungverjalands og Póllands (f. 1326).
- 13. október - Pétur 2. konungur Kýpur.
- Filippa Plantagenet, dóttir Lionels hertoga af Clarence, ættmóðir York-ættar.