1440
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1440 (MCDXL í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Ásgeir Pétursson lét af embætti lögmann sunnan og austan.
- Gozewijn Comhaer Skálholtsbiskup fór úr landi en kom aftur tveimur árum síðar.
- Jón Bloxwich lét af embætti Hólabiskups.
- Jón Gamlason varð ábóti í Þingeyraklaustri.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- (Líklega) Andrés Guðmundsson, sýslumaður (d. 1508)
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Helgi Guðnason, lögmaður á Stóru-Ökrum.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 8. mars - Vladislás 3. af Póllandi var kosinn konungur Ungverjalands. Síðar var reynd bylting gegn honum.
- 20. mars - Sigismund Kęstutaitis, stórhertogi Litáens, var ráðinn af dögum.
- 9. apríl - Eiríkur af Pommern settur af sem konungur Danmerkur og Kristófer af Bæjaralandi tók við.
- Apríl - Ottómanar hófu umsátur um Belgrad sem stóð í hálft ár og mistókst þeim að ná borginni á sitt vald.
- 29. júní - Ítölsku ríkin Lýðveldið Feneyjar, Lýðveldið Flórens og Páfaríkið báru sigurorð af Hertogadæminu Mílanó í orrustunni við Anghiari í Toskana.
- 22. október - Gilles de Rais, fyrirmyndin að Bláskeggi, játaði á sig morð á fjölda barna og var dæmdur til dauða.
- 2. nóvember - Kantónan Zürich var rekin úr Svissneska ríkjasambandinu og hófst stríð milli hennar og hinna 7 kantónanna sem stóð í 5 ár.
- 27. nóvember - Karl hertogi af Orléans, nýkominn heim eftir að hafa verið gísl í Englandi í tæpan aldarfjórðung, giftist þriðju konu sinni, Maríu af Cleves.
- Mingveldið í Kína hóf átak til að stöðva ólöglega námavinnslu.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 22. janúar - Ívan mikli Rússakeisari (d. 1505).
- Steinn Sture eldri, ríkisstjóri Svíþjóðar 1470–1497 og 1501–1503.
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 26. október - Gilles de Rais, franskur aðalsmaður (hengdur) (f. 1404).
- (líklega) - Jón Vilhjálmsson Craxton, biskup á Hólum og í Skálholti.