1454
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |
Árið 1454 (MCDLIV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Brandur Jónsson varð lögmaður norðan og vestan.
- Í Gottskálksannál segir að 18 útilegumenn hafi verið teknir á Staðarfjöllum í Skagafirði og hengdir á Reynistað, allir nema einn.
- Fædd
Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]
- 4. febrúar - Þrettán ára stríðið hófst: Leyndarráð prússneska sambandsins sendi stórmeistara Þýsku riddaranna formlega tilkynningu um óhlýðni.
- 6. mars - Kasimír 4. Póllandskonungur hafnaði bandalagi við Þýsku riddarana.
- 9. apríl - Francesco Sforza, hertogi Mílanó myndaði bandalag með Lýðveldinu Flórens og Konungsríkinu Napólí. Síðar á árinu komu Páfaríkið og Lýðveldið Feneyjar inn.
- 13. júní - Kantónan St. Gallen var samþykkt inn í Svissneska ríkjasambandið.
- 18. september - Pólski herinn beið ósigur fyrir Þýsku riddurunum í orrustunni við Chojnice.
- 2. október - Serbar unnu sigur á Ottómönum í orrustunni við Kruševac.
- 14. nóvember - Mehmed 2. soldán Ottómana vann sigur á Serbum og stjaksetti hershöfðingjann Nikola Skobaljić sem hafði unnið Ottómana mánuði áður og sendi höfuð hans til Konstantínópels.
- 12. desember - Stór jarðskjálfti og flóðbylgja urðu undan austurströnd Japans. Mannfall óvíst.
Ódagsett
[breyta | breyta frumkóða]- Hinrik Kaldajárn sagði af sér sem erkibiskup í Niðarósi eftir harðar deilur við Kristján 1. Danakonung og Marcellus Skálholtsbiskup.
- Fyrsta vestræna skjalið með dagsetningu var prentað í Mainz þetta ár í prentsmiðju Gutenbergs. Það var aflátsbréf.
- Fædd
- 9. mars - Amerigo Vespucci, ítalskur landkönnuður (d. 1512).
- Pinturicchio, ítalskur listmálari (d. 1513).
- Dáin