1480
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1480 (MCDLXXX í rómverskum tölum)
Ísland
[breyta | breyta frumkóða]- Íslendingar sendu kvörtunarbréf til Kristjáns 1. Danakonungs um vetursetu útlendinga, sem þeir segja til stórskaða fyrir landið, meðal annars vegna þess að þeir lokki til sín vinnufólk frá bændum.
- Á Alþingi skiptu tólf menn sem til þess voru skipaðir eignum Guðmundar Arasonar ríka, sem gerður var útlægur 1446, í þrjá hluta samkvæmt konungsbréfi, milli Solveigar dóttur hans, erfingja Björns Þorleifssonar hirðstjóra og svo Kristjáns 1. konungs sjálfs. Skiptin voru Solveigu mjög hagstæð og fékk hún margfaldan hlut á við hina.
- Þorleifur Björnsson sigldi á konungsfund til að reyna að fá skiptin eftir Guðmund ríka gerð ógild.
- Október - Ólafur Rögnvaldsson Hólabiskup lét menn fara að Bjarna Ólasyni og handsama hann vegna Hvassafellsmála.
- (líklega) Torfajökull gaus.
- Eyjólfur Einarsson varð lögmaður sunnan og austan.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- Jón Magnússon, lögréttumaður á Svalbarði og ættfaðir Svalbarðsættar (d. 1564).
Dáin
[breyta | breyta frumkóða]Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 3. mars - Hertogadæmið Mílanó og Svissneska ríkjasambandið skrifuðu undir friðarsamning. Mílanó lét af hendi Leventina-svæðið til kantónunnar Uri 15 mánuðum eftir orrustuna við Giornico þar sem svissnesku ríkin báru sigurorð af Mílanó.
- 6. mars - Toledo-sáttmálinn: Ferdinand og Ísabella konungshjón Spánar viðurkenndu landnám Afonso 5. konungs Portúgals í Afríku og Afonso viðurkenndi yfirráð Spánar á Kanaríeyjum.
- 23. maí - Mehmed 2. soldán sendi her Osmanaríkisins til að reyna að ná Ródos. Umsátri þeirra um Ródosborg lauk þó eftir að herinn gerði árangurslaust áhlaup 28. júlí. Það var ekki fyrr en 1522 sem Ródos féll í hendur Osmana.
- 14. ágúst - Osmanar sem náð höfðu ítölska bænum Otranto drápu yfir 800 íbúa sem neituðu af snúa til íslams.
- 27. september - Spænski rannsóknarrétturinn hóf starfsemi þegar Ferdinand og Ísabella réðu tvo klerka til starfa.
- 8. október - Staðan mikla við Úgrafljót leiddi til þess að Rússland öðlast sjálfstæði frá Gullnu hirðinni.
- 3. nóvember - Ludovico Sforza varð ríkisstjóri í Hertogadæminu Mílanó.
- Þær rústir sem enn stóðu af vitanum í Alexandríu voru notaðar til að byggja virki.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]- 10. janúar - Margrét af Austurríki, ríkisstjóri Niðurlanda (d. 1530).
- 18. apríl - Lucrezia Borgia, ítölsk hefðarkona, dóttir Alexanders VI páfa (d. 1519).
- Ferdinand Magellan, portúgalskur landkönnuður (d. 1521).