Fara í innihald

1692

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ár

1689 1690 1691 – 1692 – 1693 1694 1695

Áratugir

1681-1690 – 1691-1700 – 1701-1710

Aldir

16. öldin – 17. öldin – 18. öldin

Árið 1692 (MDCXCII í rómverskum tölum) var 92. ár 17. aldar og hlaupár sem hófst á þriðjudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en föstudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.

  • Kristofer Heidemann, landfógeti, stóð fyrir því á Alþingi um sumarið að láta tjalda yfir Lögréttu með vaðmáli en áður hafði rétturinn verið haldinn undir berum himni.
  • Samkvæmt annálum fundust fimm heimilismenn frá Gröf í Norður-Múlasýslu dauðir í bænum. Þeir voru allir sprungnir á kviði og líkin þrútin og uppþembd. Hjá þeim í baðstofu fannst silungur á diski. Segir í annálum að það hafi líklega verið öfuguggi, en hann var samkvæmt hjátrú baneitraðastur allra kvikinda.
Sjóorrustan við La Hogue