Fara í innihald

BMW

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bayerische Motoren Werke (BMW)
Rekstrarform Hlutafélag
Stofnað 1916
Staðsetning Fáni Þýskalands München, Þýskaland
Lykilpersónur Norbert Reithofer (forstjóri)[1]
Starfsemi Framleiðandi farartækja
Dótturfyrirtæki Rolls-Royce Motor Cars
Starfsfólk 95,450 (2010)[2]
Vefsíða bmw.com

BMW (skammstöfun fyrir Bayerische Motoren Werke AG) er þýskur bílaframleiðandi. Fyrirtækið var stofnað árið 1916. Höfuðstöðvar þess eru í München í Þýskalandi.

Saga fyrirtækisins

[breyta | breyta frumkóða]

Upphaflega framleiddi BMW flugvélahreyfla en var fyrirskipað að hætta framleiðslu þeirra eftir fyrri heimsstyrjöldina samkvæmt Versalasamningnum.[3] Árið 1923 tók fyrirtækið að framleiða vélhjól þegar banninu var smátt og smátt aflétt[4] og bifreiðar um 1928-1929.[5][6][7]

Hringlaga vörumerki BMW táknar hreyfingu flugvélahreyfils, hvíta spaða sem kljúfa bláan himininn. Þessa útskýringu kom BMW þó ekki með fyrr en árið 1929, tólf árum eftir hönnun þess.[8] Merkið var þróað út frá merki Rapp Motorenwerke, fyrirtækisins sem BMW óx út frá, en hugmyndin var upprunalega fengin frá fána Bæjaralands.

Þegar hergagnaframleiðsla Þjóðverja hófst aftur á fjórða áratugi 20. aldar fór fyrirtækið að framleiða hreyfla fyrir þýska flugherinn (Luftwaffe). Á stríðsárunum framleiddi BMW yfir 30 þúsund hreyfla og voru sumir þeirra byltingakenndir.

Eftir stríðið tók að syrta í álinn hjá fyrirtækinu og árið 1959 var alvarlega íhugað að leggja starfsemina niður. Þó var ákveðið að halda henni áfram og leggja aukna áherslu á bifreiðasmíði. Keypt var leyfi á framleiðslu ítalska smábílsins Iso Isetta og í hann sett breytt útgáfa af BMW-bifhjólavél. Með þessu hlaust nægur hagnaður til að halda fyrirtækinu á floti og komast á skrið aftur. Frá árinu 1959 hefur fjölskylda sem ber nafnið Quandt átt 46% hlut í fyrirtækinu en afgangurinn er í eigu almennra hluthafa.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „BMW to appoint production head Reithofer as new CEO tomorrow“ (enska).
  2. ↑ „Ársskýrlsa 2008“ (PDF) (enska). BMW Group. Sótt 24. febrúar 2010.
  3. ↑ „Fliegerschule St.Gallen - history“ (þýska). Afrit af upprunalegu geymt þann 28. maí 2007. Sótt 24. febrúar 2010.
  4. ↑ Darwin Holmstrom, Brian J. Nelson (2002). BMW Motorcycles. MotorBooks/MBI Publishing Company. ISBN 076031098X. Afrit af upprunalegu geymt þann 20 janúar 2012. Sótt 24 febrúar 2010.Sótt þann 24. febrúar 2010.
  5. ↑ Johnson, Richard Alan (2005). Six men who built the modern auto industry. MotorBooks/MBI Publishing Company. ISBN 9780760319581.
  6. ↑ Disseminative Capabilities: A Case Study of Collaborative Product Development in the Automotive. Gabler Verlag. 2008. ISBN 9783834912541.
  7. ↑ Kiley, David (2004). Driven: inside BMW, the most admired car company in the world. John Wiley and Sons. ISBN 9780471269205.
  8. ↑ Dr. Florian Triebel. „The Origin of the BMW Logo: Fact and Fiction“ (PDF). Mobile Tradition live / tölublað 01.2005 (enska). Sótt 24. febrúar 2010.
  Þessi fyrirtækjagrein sem tengist Þýskalandi og bílum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.