Fara í innihald

Hugo Stinnes

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hugo Stinnes
Hugo Stinnes u. þ. b. 1900.
Fæddur
Hugo Adolf Eugen Victor Stinnes

12. febrúar 1870(1870-02-12)
Dáinn10. apríl 1924 (54 ára)
ÞjóðerniÞýskur
FlokkurÞýski þjóðarflokkurinn
MakiClara Wagenknecht (g. 1895)
Börn7

Hugo Adolf Eugen Victor Stinnes (12. febrúar 1870 – 10. apríl 1924) var þýskur iðnjöfur og stjórnmálamaður sem sat á þýska ríkisþinginu frá 1920 til 1924. Á lokaárum þýska keisaradæmisins og upphafsárum Weimar-lýðveldisins var hann talinn einn áhrifamesti viðskiptamaður í Evrópu.

Hugo Stinnes fæddist í Mülheim í Þýskalandi 22. febrúar 1870. Hann fæddist inn í fjölskyldu sem hafði efnast á námuvinnslu og því lá fyrir honum að taka við umtalsverðu viðskiptaveldi. Tvítugur að aldri erfði Stinnes hlut föður síns í fjölskyldufyrirtækinu sem óx og dafnaði undir hans stjórn og varð hann orðinn þekktasti iðnrekandi Þýskalands við lok fyrri heimsstyrjaldar. Um leið var Stinnes af þeirri kynslóð sem helstu áhrifamenn Weimar lýðveldisins voru af, sem ekki höfðu komist til áhrifa við aldamótin og margir ekki náð pólitískum hápunkti sínum við upphaf byltingarinnar 1918.[1]

Í dag er hann þó einkum þekktur fyrir aðkomu sína að svokölluðu „Stinnes-Legien“ samkomulagi milli þýskra atvinnurekenda og verkalýðsfélaga, sem fól í sér friðarskyldu á þýskum vinnumarkað frá 15. nóvember 1918, eða við lok fyrri heimsstyrjaldar þegar milljónir hermanna sneru heim.

Við andlát hans 10. apríl 1924 var hann talinn einn ríkasti maður heims en  heima fyrir var hann ásakaður um að hafa nota auð sinn og aðgang að fjármagni á tímum óðaverðbólgu til að auðgast með því að kaupa upp eignir og fyrirtæki á niðursettu verði.[2] Náði þá viðskiptaveldi hans til allra kima þýsks efnahagslífs; frá kolanámum, stálvinnslum og raftækjaverksmiðjum til hótela, skipafélaga, banka og dagblaða. Árið 1922 var skrifað í þýskum blöðum að enginn í Þýskalandi hefði safnað jafnmiklum völdum og Hugo Stinnes og var hann ári síðar nefndur hinn „nýji keisari Þýskalands“ í bandaríska tímaritinu Time.[3]

Upphaf efnahagsumsvifa

[breyta | breyta frumkóða]

Hugo Stinnes erfði fyrirtæki fjölskyldunnar á tvítugsaldri sem fólst einkum í kolavinnslu ásamt skipa- og verslunarrekstri því tengdu. Hann fjárfesti í námum víða í Evrópu, meðal annars í Englandi og Wales, og frá 1893 eftir stofnun Hugo Stinnes GmbH fjárfesti hann í stálvinnslu sem og orku- og vatnsframleiðslu í Ruhr héraðinu. Þannig náðu umsvif Stinnes utan um allt framleiðsluferlið, frá framleiðslu hrávara til dreifingu tilbúinna afurða.[4]

Stinnes hafði miklar áhyggjur af afleiðingum þess ef til stríðsátaka kæmi, til dæmis ef hafnbann yrði sett á Þýskaland og gerði hann í því skyni ýmsar ráðstafanir, meðal annars að staðsetja aðalstöðvar skipastarfseminnar á Bretlandi. Ef til þess hefði ekki komið má telja líklegt að sem hluti af Versalasamningunum hefði floti hans verið gerður upptækur.[5]

Heimsstyrjöldin fyrri

[breyta | breyta frumkóða]

Hugo Stinnes var eins og margir Þjóðverjar á öðrum áratug tuttugustu aldar áhugasamur um stærra Þýskaland, sem að sumra mati myndi ná frá Úralfjöllum að Biskajaflóa.[6] Var sú skoðun kölluð „innlimunarstefna“ þótt þeirri skoðun fylgdi ekki endilega stríðsæsingarstefna. Það voru hins vegar fyrst og fremst viðskiptatækifæri sem Stinnes hafði í huga í því samhengi þótt erfitt sé að fullyrða hvort viðskiptahæfileikar hans hefðu leitt til hins mikla árangurs hans síðar, hefði ekki til styrjaldarinnar komið. Hagnaðist hann gríðarlega í heimsstyrjöldinni fyrri á því selja skotfæri til þýska hersins ásamt því að færa sér í nyt hernám Þjóðverja á Belgíu sem og fjárhagslegt hrun Þýskalands. Hefur því verið haldið fram að auðævi hans fyrir stríð, um 7,5 milljónir dollara, hafi hundraðfaldast á áratugnum frá því átökin hófust.[7]

Afskipti af stjórnmálum

[breyta | breyta frumkóða]

Á tímum keisaradæmisins voru verkföll og barátta verkafólks fyrir betri kjörum oftar en ekki barin niður með valdi. Nóvemberbyltingin leiddi hins vegar til þess að vinnuveitendur gerðu sér grein fyrir nauðsyn þess að skapa ramma um samskipti aðila á vinnumarkaði og réttindi launafólks. Á þessum tímum horfðu margir launþegar og verkalýðssamtök með hýru auga til byltingarinnar í Rússlandi sem um leið vakti ótta vinnuveitenda og atvinnurekenda.

Var það í ölduróti nóvemberbyltingarinnar 1918 sem Stinnes leiddi fyrir hönd þýskra iðnframleiðanda, vinnumarkaðssamkomulag við verkalýðsfélögin, leidd af Carl Legien, sem nefnt hefur verið í höfuð þeirra sem „Stinnes-Legien“-samkomulagið.[8] Var samið um að stofna samstarfsvettvang aðila vinnumarkaðarins, „Zentralarbeitsgemeinschaft“, þar sem vinnuveitendur viðurkenndu almenn verkalýðsfélög sem samningsaðila um kaup og kjör, átta tíma vinnudag og starfsmannaráð á vinnustöðum með fleiri en 50 starfsmönnum. Verkalýðsfélög samþykktu jafnframt eignarhald atvinnurekenda á atvinnutækjunum.

Þarna mættust ólíkir menn, Liegen, alinn upp á munaðarleysingjahæli[9] en Stinnes við allsnægtir. Carl tilheyrði borgaralegum armi sósíaldemókrata og sat á þingi frá 1903 til dauðadags 1920. Stinnes var alinn upp til að ná sínu fram en hann var skynsamur maður og þátttaka í þessu samkomulagi fjarlægði margar ógnanir við stöðuleika atvinnulífsins. Þrátt fyrir það voru skoðanir hans um þessi málefni skýrar, stuttur vinnudagur minnkaði framleiðni og hátt kaup ógnaði hagnaði rekstrar hans.

Það var svo í hinu pólitíska upplausnarástandi sem ríkti í Weimar lýðveldinu árið 1920 sem dyr Stinnes inn í þýsk stjórnmál tóku að opnast. Eftir að Sósíaldemókratar yfirgáfu ríkisstjórn 1920 ríktu hægri- og miðjuflokkarnir DDP og Zentrum um leið og „stríðsskaðabótamálið“ var meginviðfangsefni stjórnmálaumræðunnar. Það var á einni af röð árangurslítilla ráðstefna um úrlausn stríðsskaðabótanna, á Spa-ráðstefnunni árið sumarið 1920 í Belgíu, hinni fyrstu sem Þýskalandi var boðið á, sem Stinnes flutti harðorða ræðu gagnvart bandamönnum sem hann kallaði „geðveika drottnara“ og uppskar mikið lof heima fyrir en hneykslun bandamanna.[10]

Þannig varð andstaðan við Versalasamninginn frjór jarðvegur fyrir pólitísk upphlaup og áróður um leið og það hindraði myndun lýðræðislegs stjórnarmeirihluta. Það leiddi til að raddir vel meinandi og frjálslyndari stjórnmálamanna voru oft þaggaðar niður í popúlískum upphrópunum, þar sem Hugo Stinnes var í lykilhlutverki. Reyndist Stinnes slægur stjórnmálamaður sem lék tveimur skjöldum og tók hann sem dæmi þátt í viðræðum við Englendinga og Frakka sem einkaaðili um lausn stríðsskaðabótanna á meðan hann lék á súðum í heimalandi sínu og fáraðist yfir eftirgjöf í garð bandamanna.[11]

Frægasti forsætisráðherra Frakka á þessum árum og sá harðvítugasti gagnvart Þjóðverjum, Raymond Poincaré, sá lengra en þeir sem töldu Þjóðverja líkt og Walther Rathenau, raunverulega vilja framfylgja Versalasamningunum. Það væru í raun menn eins og Stinnes sem væru raunverulegir fulltrúar raddar þýsku þjóðarinnar, sem taldi fylgispekt við samninginn „sjálfsmorðsfár“.[12] Var Stinnes um leið áhrifamikill á hægri væng stjórnmálanna og í hinni svokölluðu „Kapp-uppreisn,“[13] sem Stinnes tók þegjandi afstöðu gegn, tók hann fram fyrir hendur Wolfgang Kapp sem vildi lífláta leiðtoga helstu forsprakka þeirra verkfalla spruttu gegn uppreisninni, um leið og Kapp fékk síðar skjól í sumarhúsi Stinnes í Svíþjóð.[14]

Viðskiptaveldi Stinnes eftir fyrra stríð

[breyta | breyta frumkóða]

Í kjölfar fyrri heimsstyrjaldar þráaðist Weimar-stjórnin við að skera niður ríkisútgjöld eða að hækka skatta til að ná niður fjárlagahalla. Á móti hélst atvinnuleysi lágt, einungis 0,9% árið 1921. Það leiddi til vaxandi verðbólgu sem ríkisstjórnir Weimar-lýðveldisins brugðust við með því einfaldlega að prenta peninga með beinni sölu ríkisskuldabréfa- og víxla til þýska seðlabankans, sem jók verðbólguna enn frekar. Ríkir iðnjöfrar líkt og Hugo Stinnes, gripu tækifærin í því ástandi og högnuðust gríðarlega á því að kaupa upp rauneignir, einkum fasteignir og vélbúnað. Þeir höfðu einnig aðgang að erlendu fjármagni á lágum vöxtum sem auðvelt var að greiða af með hratt hækkandi verðbólgu og þannig lék verðbólgan lykilhlutverk í að stækka viðskiptaveldi Hugo Stinnes.[15]

Ýtti verðbólga ýtir undir auðsöfnun þeirra sem höfðu keypt eignir og greitt hluta kaupverðs með lánum á vöxtum langt undir verðrýrnun skuldanna sem auðveldaði hinum sömu að kaupa eignir sem þeir hefðu við eðlilega aðstæður ekki haft ráð á. Þannig var Hugo Stinnes, einn ríkasti maður landsins, ásakaður um að hafa nýtt sér ástandið fremur öðrum og hlaut viðurnefnið „verðbólgukóngurinn“ (þ: Inflationskönig) í kaupbæti.[16]

Dauði og arfleifð

[breyta | breyta frumkóða]

Hugo Stinnes lést 10. apríl 1924 í Berlín, 54 ára gamall. Liggur arfleifð hans einkum í að hafa byggt upp eitt stærsta viðskiptaveldi álfunnar sem bæði náði yfir fjölmargar atvinnugreinar og fjölda landa um leið og hann safnaði upp auði samhliða bata hins þýska iðnaðar eftir lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Var hann umtalaðasti iðnjöfur eftirstríðsáranna og viðskiptaveldi hans líkt við „heimsveldi“.[17] Um leið voru áhrif hans mikil, ekki síst fyrir tilstilli þeirra fjölmörgu fjölmiðla sem hann fjárfesti í og notaði til að móta stjórnmálaumræðuna, oftar en ekki gegn stjórnvöldum Weimar lýðveldisins og til stuðnings hægri- og þjóðernissinnuðum öflum í þýsku stjórnmálalífi. Hann tók síðan þátt í DVP (Þjóðarflokknum), sem var hægra megin við miðju þýskra stjórnmála.[18]

Þrátt fyrir mikinn auð, barst Hugo Stinnes ekki á. Honum er lýst sem manni sem hafði ekki mikinn áhuga á persónulegum gæðum - hann hafði lítinn áhuga á mat og tónlist og er sagður aldrei hafa lesið bók ─ . Hann sást sjaldan í leikhúsum þó hann ætti nokkur. Var sagt að hann hafi eignast fyrstu kjólfötin árið 1917 en þangað til hafði hann mætt í sínum vinnufötum við sérhvert tilefni.[3] Ólíkt mörgum öðrum iðnjöfrum sem margir hneigðust til að viðhalda auðæfum sínum á efri árum, var metnaður Stinnes til frekari útþenslu viðskiptaveldis síns enn í vexti þegar hann lést og hafði þá ýmis áform á prjónum sem þannig urðu ekki að veruleika.[17] Daginn eftir andlát hans höfðu hins vegar hlutabréf í fyrirtækjum Stinnes fallið um 25% og litlu síðar hafði viðskiptaveldi hans svo gott sem hrunið.[7]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Detlev J. K. Peukert, The Weimar Republic: The Crisis of Classical Modernity, þýðandi Richard Deveson (New York: Hill and Wang, 1989), bls. 17.
  2. ↑ Volker Ullrich, Fateful Hours: The Collapse of the Weimar Republic, þýðandi Jefferson Chase (New York: W. W. Norton & Company, 2025), bls. 96.
  3. 1 2 „Biography of Hugo Stinnes, Rich German,“ Montrose Daily Press, árg. XV, nr. 239, 11. apríl 1924, Sótt 28. mars 2027.
  4. ↑ „Hugo Stinnes: German industrialist,“ Britannica Money. Sótt 27. mars 2026.
  5. ↑ Gerald D. Feldman, „Hugo Stinnes and the Prospect of War Before 1914,“ Anticipating Total War: The German and American Experiences, 1871–1914, ritstjórar Manfred F. Boemeke, Roger Chickering, og Stig Förster (Cambridge: Cambridge University Press, 1999), bls. 77-96.
  6. ↑ Nils Löffelbein, „War Aims and War Aims Discussions (Germany),“ 1914-1918-online: International Encyclopedia of the First World War, ritstjórar Ute Daniel, Peter Gatrell, Oliver Janz, Heather Jones, Jennifer D. Keene, Alan Kramer, og Bill Nasson, (Berlin: Freie Universität Berlin, 2017). Sótt 27. mars 2026.
  7. 1 2 „Germany: Der Tod[óvirkur tengill],“ Time Magazine Times, apríl 21, 1924, bls. 9-10. Sótt 27. mars 2026.
  8. ↑ Detlev J. K. Peukert, The Weimar Republic: The Crisis of Classical Modernity, þýðandi Richard Deveson (New York: Hill and Wang, 1989), bls. 47.
  9. ↑ „Carl Liegen,“ Alchetron. Sótt 27. mars 2026.
  10. ↑ Eric D. Weitz, Weimar Germany: Promise and Tragedy (Princeton, NJ: Princeton University Press 2007), bls. 101.
  11. ↑ Eric D. Weitz, Weimar Germany: Promise and Tragedy (Princeton, NJ: Princeton University Press 2007), bls. 144-145.
  12. ↑ Frank McDonough, The Weimar Years: Rise and Fall 1918-1933 (London: Head of Zeus, 2023), bls. 224.
  13. ↑ „The Kapp Putch,“ Alpha History. Sótt 28. mars 2026.
  14. ↑ Volker Ullrich, Fateful Hours: The Collapse of the Weimar Republic, þýðandi Jefferson Chase (New York: W. W. Norton & Company, 2025), bls. 59-60, 64, 72.
  15. ↑ Frank McDonough, The Weimar Years: Rise and Fall 1918-1933 (London: Head of Zeus, 2023), bls. 219.
  16. ↑ Burnet Hershey, „Germany's Unofficial Kaiser: Hugo Stinnes,“ Current History 15, nr. 5 (1922), bls. 799-805. Sótt 28. mars, 2026.
  17. 1 2 Ernst Neckarsulmer, In Der alte und der neue Reichtum (Berlin: F. Fontane & Co., 1925), bls. 58-61. Sótt 11 apríl, 2026.
  18. ↑ „DVP,“ The Weimar Republic - Germany's first democracy. Sótt 27.mars, 2026.