Hugur

Hugur er hugtak sem oftast notað til að lýsa æðri eiginleikum mannsheilans til dæmis persónuleika, hugsun, skynsemi, minni, gáfum og tilfinningum. Hugurinn er það sem hugsar, finnur, skynjar, ímyndar, man og vill. Hugurinn er staður bæði meðvitaðra og ómeðvitaðra hugrænna ferla. Hugurinn leikur lykilhlutverk á flestum sviðum mannlegrar tilveru, en deilt er um hvert eðli hans sé.[1] Sumir leggja áherslu á innri ferla hugans og segja hann breyta upplýsingum. Þá er sagt að hugurinn sé ekki aðgengilegur fyrir beinar athuganir annarra en þess sem hugurinn tilheyrir.[2] Aðrir leggja áherslu á ytri birtingarmyndir hugans og skilgreina hugarástand sem tilhneigingu til að sýna tiltekið (sýnilegt) atferli.
Samband hugar og líkama er sígilt viðfangsefni sem fæst við tengsl anda og efnis. Lengi var litið svo á að hugur og líkami væru eðlisólík fyrirbæri sem ættu sér sjálfstæða tilvist án hvors annars. Frá því snemma á 20. öld hefur smættarefnishyggja verið ríkjandi í vísindum, en samkvæmt þeirri hugmynd eru engin fyrirbæri til utan efnislegrar tilveru. Samkvæmt því er hugurinn efnislegur eiginleiki sumra hluta. Þróun hugans tengist þróun taugakerfisins sem varð til þess að heilar urðu til. Með aukinni stærð og flóknari samsetningu heilans jókst hugræn færni á tilteknum sviðum sem tengjast ákveðnum svæðum í heilanum. Hugur einstaklinga þróast líka eftir því sem viðkomandi öðlast meiri reynslu og gengur í gegnum sálræn þroskastig þegar hann eldist. Sumt fólk glímir við geðraskanir þar sem tilteknir hugrænir ferlar virka ekki eins og þeir ættu að gera.
Almennt er samþykkt að fleiri dýr en maðurinn búi yfir einhvers konar huga, en deilt er um hvaða dýr það gætu verið.[2] Hugmyndir um hvort hægt sé að skapa gervihuga eða ekki byggjast á sams konar óvissu.
Hugurinn er miðlægt viðfangsefni margra vísindagreina á borð við sálfræði, taugalíffræði, hugfræði og hugspeki. Þessar ólíku greinar nálgast viðfangsefnið á ólíkan hátt með ólíkum aðferðum, meðal annars með taugamyndum og öðrum empírískum aðferðum, og hugartilraunum og öðrum heimspekigreiningum. Hugurinn skiptir miklu máli á fleiri sviðum vísinda og mannlegrar hugsunar, til dæmis mannfræði, þekkingarfræði, menntunarfræði og trúarbrögðum.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jón Gunnar Þorsteinsson (13.3.2008). „Hvernig getum við hugsað?“. Vísindavefurinn.
- 1 2 Atli Harðarson (11.9.2000). „Er hægt að sanna það vísindalega að maðurinn hafi vitund og að hann hugsi?“. Vísindavefurinn.
Heimildir og ítarefni
[breyta | breyta frumkóða]- Feser, Edward (2006). Philosophy of Mind: A Beginner's Guide. Oxford: Oneworld.
- Fodor, Jerry (1975). The Language of Thought. Cambridge, MA: Harvard University Press.
- Fodor, Jerry (2001). The Mind Doesn't Work That Way. Cambridge, MA: The MIT Press.
- Heil, John (1998). Philosophy of Mind: A Contemporary Introduction. London: Routledge.
- Kim, Jaegwon (2011). Philosophy of Mind (3. útgáfa). Philadelphia: Westview Press.
- McGinn, Colin (2004). Mindsight: Image, Dream, Meaning. Cambridge, MA: Harvard University Press.
- McGinn, Colin (1999). The Mysterious Flame: Conscious Minds in a Material World. New York: Basic Books.
- Russell, Bertrand (1992). The Analysis of Mind. London: Routledge.
- Ryle, Gilbert (1949). The Concept of Mind. Chicago: The University of Chicago Press.
- Searle, John R. (1983). Intentionality: An Essay in the Philosophy of Mind. Cambridge: Cambridge University Press.
- Searle, John R. (2004). Mind: A Brief Introduction. Oxford: Oxford University Press.
- Searle, John [R] (2000). Mind, Language and Society: Philosophy in the Real World. London: Phoenix.
- Searle, John [R]. (1984). Minds, Brains and Science. Cambridge, MA: Harvard University Press.
- Searle, John R. (1998). The Mystery of Consciousness. London: Granta Books.
- Searle, John R. (2001). Rationality in Action. Cambridge, MA: The MIT Press.
- Stitch, Stephen (1996). Deconstructing the Mind. Oxford: Oxford University Press.
- Stitch, Stephen P.; Ted A. Warfield, ritstjórar (2003). The Blackwell Guide to Philosophy of Mind. Oxford: Blackwell.