Invader Zim

Invader Zim (sem þýðir „Zim innrásarliði“) er teiknimyndaþáttaröð eftir myndasöguhöfundinn Jhonen Vasquez sem sýnd var á bandarísku sjónvarpsstöðinni Nickelodeon 2001 til 2002. Þættirnir eru tæknilega vandaðir og undir nokkrum áhrifum frá animeteiknimyndum. Kímnin og stíllinn er dökkur og kaldhæðinn. Þetta skapaði lítinn en ákafan hóp aðdáenda sem voru yfirleitt nokkuð eldri en hefðbundnir áhorfendur Nickelodeon. Stöðin varð fyrir vonbrigðum með lítið áhorf á þættina og fannst það ekki réttlæta háan framleiðslukostnað. Hún hætti því framleiðslunni um sinn en hóf hana aftur vegna þrýstings frá aðdáendum. Stöðin hætti framleiðslunni aftur, hóf hana á ný og hætti svo að lokum endanlega. Aðeins ein og hálf þáttaröð voru framleiddar. Síðustu sex þættir annarrar þáttaraðar voru aldrei fullkláraðir eða sendir út, þrátt fyrir að aðeins nokkurra daga vinna hefði verið eftir. Þættirnir fóru fyrst í loftið í mars 2001. Báðar þáttaraðir, ásamt þáttunum sex sem aldrei voru sendir út, komu út á DVD árið 2004 og voru síðan sendar út á Nickleodeon Network árið 2006.[1]
Söguþráður
[breyta | breyta frumkóða]Zim er geimvera af hinum mikla Irkenkynþætti þar sem staða einstaklinga í samfélaginu ræðst af hæð þeirra. Yfir Irkenveldinu ríkja „hinir almáttugu hæstu“ (The Almighty Tallest) sem eru tveir þegar þættirnir gerast, þar sem þeir eru nákvæmlega jafn háir. Zim er sendur í útlegð til mathallarplánetunnar Foodcourtia þar sem hann á að verja afgangi ævi sinnar í að steikja hluti, sem er refsing fyrir að valda miklu tjóni í einni borg Irkenþjóðarinnar með risastóru vélmenni. Vélmennið var liður í mikilli herför sem kallaðist „Aðgerð: Yfirvofandi skapadómur I“ (Operation Impending Doom I). Zim var fullákafur og ræsti sitt vélmenni meðan hann var enn staddur á heimaplánetu sinni.
Þegar Zim heyrir af yfirvofandi „Aðgerð: Yfirvofandi skapadómur II“ tekur hann ákvörðun um að „hætta“ útlegðinni. Honum tekst að sleppa frá Foodcourtia og flýtir sér að taka þátt í hinni „miklu úthlutun“ (Great Assigning). Þar er þeim bestu í her Irkenveldisins úthlutað plánetum til að ferðast til, þar sem þeir eiga að falla inn í samfélag innfæddra, safna upplýsingum og undirbúa innrás. Zim nær að vera viðstaddur úthlutunina þar sem hann grátbiður hina hæstu um að úthluta sér plánetu. Til að losna við hann úthluta þeir Zim leyniplánetu (sem reyndar var bara punktur af handahófi í geimnum) sem reynist vera jörðin. Zim kemst þangað eftir sex mánaða ferðalag ásamt GIR, treggáfuðu vélmenni sem er aðstoðarmaður hans.
Þættirnir lýsa tilraunum Zim til að hertaka jörðina meðan erkióvinur hans, Dib, reynir að stöðva hann.
Persónur
[breyta | breyta frumkóða]Zim
[breyta | breyta frumkóða]Aðalpersónan sem serían er nefnd eftir er innrásarliðinn Zim, sem er geimvera sem endar á Jörðinni með þau áform að undirbúa plánetuna fyrir yfirtöku Irkanna.
GIR
[breyta | breyta frumkóða]Aðstoðarvélmennið sem kemur með Zim er GIR, sem er gölluð útgáfa af SIR vélmennum sem almennt aðstoða innrásarliða í áformum síðunum. GIR er allt annað en gáfað og kemur sjaldan að gagni.
Dib Membrane
[breyta | breyta frumkóða]Dib er nágrani Zim þar sem hann er staðsettur á jörðinni. Hann hefur þrálátan áhuga á því yfirnáttúrulega og samsæriskenningum. Hann er sjálfskipaður erkióvinur hans Zim, og er sífelt að reyna að sanna fyrir öðrum án árangurs að Zim sé geimvera sem vill taka yfir plánetuna.
Gaz Membrane
[breyta | breyta frumkóða]Dib á yngri systur sem heitir Gaz, og hún er tortryggin manneskja sem er alltaf að spila tölvuleiki.
Almáttugu Hæðstir (Almighty Tallest)
[breyta | breyta frumkóða]Rauður og Fjólublár eru þeir sem stjórna Irken samfélaginu vegna þess að þeir eru bókstaflega hæðstir á meðal allra irkens, og þar sem þeir voru jafn háir þá stjórna þeir saman.
Prófessor Membrane
[breyta | breyta frumkóða]Faðir Dib og Gaz er sérvitur vísindamaður sem hunsar allt sem tengist því yfirnáttúrulega, og þar af leiðandi tekur ekki mark á neinu sem Dib segjir.
Frú Bitur (Ms. Bitters)
[breyta | breyta frumkóða]Frú Bitur er umsjónarkennari yfir bekknum sem Dib og Zim eru í.
Myndasögur
[breyta | breyta frumkóða]Árið 2015 var byrjað að prenta myndasögublöð með Invader Zim, gefið út af Oni Press. Þessar myndasögur voru í prenti þar til ágúst 2021.[2]
Netflix Kvikmynd
[breyta | breyta frumkóða]Kvikmyndin „Invader Zim: Enter the Florpus“ kom út á Netflix þann 10 maí, 2019. Það hafði verið staðfest að Jhonen Vasquez hafði skrifað handritið fyrir kvikmyndina árið 2015, og hafði fengið kóreyska teiknimyndaverið Maven Animation Studios til að framleiða hana.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ McDonnell, Chris (28 júlí 2020). The Art of Invader Zim (enska). Abrams Books. bls. 187. ISBN 978-1419734601.
- ↑ Evan Narcisse (20 febrúar 2015). „Invader Zim is coming back in a new Comic-Book series“. Kotaku. Sótt 11. júlí 2026.
- ↑ „Invader ZIM: Enter the Florpus“. International Movie Database (IMDb). Sótt 11. júlí 2026.