Fara í innihald

Sean Penn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sean Penn
Sean Penn árið 2023.
Sean Penn árið 2023.
Upplýsingar
FæddurSean Justin Penn
17. ágúst 1960 (1960-08-17) (66 ára)
Santa Monica, Kaliforníu, U.S.
ÞjóðerniBandarískur
Störf
  • Leikari
  • kvikmyndaleikstjóri
  • framleiðandi
  • handritshöfundur
Ár virkur1974–
Maki
BörnDylan Penn
Hopper Penn
ForeldrarLeo Penn
Eileen Ryan
Óskarsverðlaun
Besti aðalleikari fyrir Dulá (2006)
Besti aðalleikari fyrir Milk (2009)
Besti aukaleikari fyrir One Battle After Another (2026)

Sean Justin Penn (f. 17. ágúst 1960)[1] er bandarískur leikari og kvikmyndagerðarmaður. Hann hefur meðal annars unnið þrenn Óskarsverðlaun, Golden Globe-verðlaun og BAFTA-verðlaun, auk þess sem hann hefur verið tilnefndur til Emmy-verðlauna og Grammy-verðlauna. Hann hlaut heiðursverðlaun César-verðlaunanna árið 2015 og Mannúðarverðlaun Bob Hope árið 2022.

Frumraun Penn á hvíta tjaldinu var í dramamyndinni Lúðrarnir þagna (1981). Hann birtist síðan í Skólavillingunum (1982), Götustrákunum (1983) og Í návígi (1986). Hann hefur tvisvar unnið til Óskarsverðlauna sem besti aðalleikarinn, fyrir að leika syrgjandi föður í myndinni Dulá (2003) og Harvey Milk, baráttumann fyrir réttindum samkynhneigðra, í myndinni Milk (2008). Penn vann þriðju Óskarsverðlaun sín, sem besti aukaleikarinn, fyrir hlutverk sitt sem spillti herforinginn Steven J. Lockjaw í myndinni One Battle After Another (2025). Hann hefur einnig verið tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir hlutverk sín í myndunum Dauðamaður nálgast (1995), Súrt og sætt (1999) og Ég heiti Sam (2001). Meðal annarra mynda hans má nefna Stríðsógnir (1989), Í ljótum leik (1990), Leið Carlitos (1993), Leikinn (1997), Á bláþræði (1998), Hringiðuna (1998), 21 gramm (2003), Fair Game (2010), The Tree of Life (2011), Licorice Pizza (2021) og Daddio (2023).

Fyrsta kvikmyndin sem Penn leikstýrði var Bræður munu berjast (1991). Hann hefur síðan leikstýrt myndunum Verðinum (1995), Loforðinu (2001) og Into the Wild (2007). Hann hefur jafnframt birst í Broadway-leikritunum Heartland (1981) og Slab Boys (1983). Í sjónvarpi hefur hann meðal annars birst sem geimfari í dramaþáttaröðinni The First (2018) og sem John N. Mitchell í pólitísku spennuþáttunum Gaslit á Starz (2022).

Penn er einnig þekktur fyrir pólitíska aðgerðastefnu sína. Hann hefur meðal annars vakið athygli með gagnrýni sinni á stjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta, samskiptum sínum við forseta Kúbu og Venesúela, mannúðarstarfi sínu í eftirmálum fellibylsins Katrínu árið 2005 og jarðskjálftans á Haítí 2010 og stuðningi sínum við úkraínska forsetann Volodymyr Zelenskyj í stríði Rússlands og Úkraínu.[2][3]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Sean Penn“. Biography.com. A&E Television Networks. Afrit af uppruna á 29 nóvember 2022. Sótt 14 ágúst 2020.
  2. ↑ „Leak sinks Penn's rescue mission hopes“. The Guardian. 7. september 2005.
  3. ↑ Smith, David (18. september 2023). „'He was born for this moment': Sean Penn on his film with Zelensky“. The Guardian. Sótt 12 júní 2024.
  Þetta æviágrip sem tengist leikurum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.