Vigvam

Vigvam, einnig Wigwam eða wiigiwaam er bústaðagerð sem áður var notuð af mörgum frumbyggjaþjóðflokkum í Norður-Ameríku til meira eða minna fastrar búsetu og er enn notuð við ýmsar hátíðlega athafnir. Í evrópskum tungumálum hefur hugtakið „wigwam“ einkum verið notað um hvelfd híbýli þeirra frumbyggja sem bjuggu á skógarsvæðum norðausturhluta álfunnar og töluðu algonkvísk tungumál.
Keilulaga bústaðir frumbyggja í Norður-Ameríku, einkum tjöld klædd húðum eða segldúk – eru í evrópskum málum oft kölluð „típí“ (enska: tipi), en þetta hugtak nær í rauninni einungis yfir tjöld frumbyggja á sléttunum miklu.
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Orði wigwam kemur úr orðinu wigwôm í tungumáli Abenaki-fólks sem bjó í nuvarandi Maine-fylki í Bandarikjunum. Tungumál frumbyggja í norðaustu Norður-Ameríku hafa öll svipuð orð sem þýða „hús“, sem dæmi er það í ojibva-máli wiigiwaam; í mikimak-máli wikuom; í wolastoqiyik-máli wikuwam; og í krímáli mīkiwāhp; en þau ná bæði yfir hvelfdar og keilulaga byggingar og einnig tjöld og nútíma hús.[1]
Wigwam
[breyta | breyta frumkóða]
Hvelfdir eða hálfkúlulagaðir bústaðir voru notaðir af af fjölmörgum frumbyggjaþjóðflokkum í norðausturhluta Norður-Ameríku. Ávalt form byggingarinnar gerði að það stóð vel af sér hvassviðri og slæmt veður og ekki síst snjóþyngsli. Frumbyggjar á svæðinu við Stóruvötnin og láglendið við St. Lawrence-fljót bjuggu ýmist í wigwam-byggingum eða langhúsum.[2]
Dæmigerðir wigwam-bústaðir í norðri stóðu vel af sér slæm veður þar sem þeir voru fremur lágir og ávalir. Burðargrindin var gerð úr hávöxnum ungum trjám af nánast hvaða trjátegund sem er, 3 til 5 metrar á lengd sem voru höggnar og beygðar í rétt form. Á meðan var verið að beygja greinarnar var hringur eða sporeskja markaður á jörðina. Stærð og þvermál voru breytilegt, allt frá 3 til 6 metrum. Síðan eru greinarnar festar í jörðina allan hringinn, greinarnar mynda boga yfir hringin. Næsta er að vefja og binda saman trjágreinar eða grönn tré í grindina til að gera hann stöðugan. Þegar grindin var tilbúin voru veggir og þak klædd. Klæðningin get verið úr mismunandi efni eftir aðstæðum, en oftast börkur af birkitrjám eða húðir. Barkarskífurnar voru saumaðir saman með grenirótum og húðirnar með sinum. Á 19. öld varð algengt að klæða með segldúk. Sumar-wigwam gátu einnig verið klæddir með mottum ofnum úr reyrgresi eða öðru hávöxnu grasi. Gólfið er þakið grenigreinum til þæginda og einangrunar. Að vetrarlagi voru bústaðirnir einangraðir með loðskinnum að innan. Eldstæði var í miðjunni og og reykurinn fór út um op í þakinu.

Wigwam-bústaðirnir vor yfirleitt byggðir til langs tíma notkunar, en þeir þjóðflokkar sem fluttu allt eftir árstíma tóku áklæðið af grindinn og rúlluð upp og tóku með sér. En grindin var skilin eftir og hægt að endurnota við endurfluttning. Það tekur mun lengri tíma að reisa wigwam-byggingu heldur en típí-tjöld. Það var heldur ekki hægt að flytja grindina á sama hátt og grindur típí-tjalda.
Stærð bústaðanna var mjög misjöfn eftir aðstæðum og venjum hvers ættbálks. Stærstu bústaðirnir voru allt að 25 m² og 3 metra hæð. [3]
Frumbyggjar í norðausturhluta Norður-Ameríku reistu einnig keilulaga bústaði sérstaklega í tímabundum veiðiferðum. Þessir bústaðir vor einnig þaktir birkiberki eða, á norðlægum slóðum þar sem lítið er um birkitré, með furugreinum og hreindýraskinni. En þessar þjóðir notuðu sama orðið wigwam yfir allar gerðir bústaða.
Wickiup
[breyta | breyta frumkóða]
Orði wickiup (sem er fengið úr algonkvískum tungumálum) hefur einnig verið notað í Evrópskum málum um einfalda kofa eða skýli úr greinum sem tíðkuðust hjá ýmsum þjóðflokkum í suðvesturhluta Bandaríkjanna og á svæðinu við Lægðina miklu (enska: The Great Basin) og að hluta til í Kaliforníu, þar á meðal Paiute, Shoshone, Washoe og Acjachemen.[4] Þessir skýli veittu skjól í eyðimerkurumhverfi og báru vitni um aðlögunarhæfni frumbyggjanna og þekkingu þeirra á umhverfinu.

Wickiup var yfirleitt byggt með grind úr þunnum og sveigjanlegum trjágreinum sem voru beygðar þannig að þeir mynduðu hvelfingu og klædd blöndu af berki, grasi eða skinnum. Með þessu var hægt að skapa hvelfda byggingu sem veitti skjól fyrir veðri og vindum, stundum var aðeins klætt fyrir eina hlið til að skýla fyrir vindi. Þessar byggingar voru mismunandi að stærð, allt frá litlum skýlum sem hýsa nokkra einstaklinga til stærri mannvirkja sem geta hýst heilar fjölskyldur. Þetta voru bráðabirgðabústaðir fyrir veiðimenn og safnara sem fluttu úr stað í stað og dvöldu stundum í nokkra daga eða jafnvel vikur á hverjum stað. Wickiups veittu tímabundið skjól og einnig við árstíðabundnar fólksflutningar.


Samanborið við tipí-tjöldin sem voru voru há og keilulaga, voru wickiup-kofarnir lágir og kubbslegir. En ólíkt tipi-tjöldunum, sem voru tekin í niður og flutt með fólkinu, var wickiup-skýlin einfaldlega skilin eftir þegar haldið var áfram förinni.
Kaddó- og Vitíta-þjóðflokkarnir á sléttunum í suðri bjuggu einnig í bústöðum með grasklæðningu, en þau voru mun stærri en wickiup-skýlin og gátu verið allt að 12 metrar í þvermál. Húsin voru hvelfd eða með uppmjór hvelfingar og voru byggð á hringlaga grunni. Einn eða tveir inngangar voru inn í húsið. Ólíkt öðrum wigwam- og wickiup-byggingum, var yfirleitt ekkert gat fyrir reykinn heldur fór hann út gegnum grasþakið.
Önnur menningarsvæði
[breyta | breyta frumkóða]Hjarðmannaþjóðir jafnt og veiði- og safaraþjóðir víða um heim hafa haft bústaði af svipuðum gerðum og wigwam og tipí frumbyggja í Norður-Ameríku. Nokkur dæmi eru:
Samar á norður Skandinavíuskaganum höfðu áður tvær megingerðir af bústöðum. Önnur var það sem heitir goahti á norðursamísku, kåhte á lulesamísku, gamme á norsku og kåta á sænsku og voru notaðir fyrir fasta búsetu sérlega yfir veturinn. Þetta voru torfhús þar sem grindin var gerð með bogadregnum stöngum á sporöskjulaga grunnflöt. Sívalar stangir eða klofið timbur var reist upp að grindinni og raðað þétt saman. Grindin var síðan klædd með birkiberki, sem var þakinn mold, torfi eða timburborðum.
Hin tegundin heitir lávvu á norðursamísku og låvdagoahte á lulesamísku. Þessi bústaður er keilulaga og svipar til típítjalda, en er nokkru lægri og stóð þess vegna betur gegn hvassviðri. Það var auðvelt að flytja allt eftir þörfum og hentaði þess vegna vel til að fylgja með hreindýrahjörðunum. Nokkrar stengur eru bundnar saman efst og raðað í hring að neðan. Þau voru áður klædd með samansaumuðum hreindýraskinnum, en síðar með segldúk.
Fjölmargar hirðingingjaþjóðir frumbyggja í Síberíu, til dæmis Nenetar, Nganasan, Enetar, Khantíar, Mansi, Komi, og Evenkerar notuðu bústaði sem voru mjög svipaðir tapí og lavvo. Þessi tegund af tjaldbústöðum er nefnt tsjum á rússnesku (Чум), tjúm á komi, ńuki á khantí og ǯū á evenkí. Khantíar suðuð birkibörkinn ásamt fiski og mosa. Fiskifeitin og hitinn gerðu börkinn nægilega sveigjanlegan til að hægt væri að sauma hann saman í stórar og vatnsheldar breiður, sem auðvelt var að rúlla upp til flutninga.
Frumbyggjar Ástralíu byggðu ýmsar gerðir af tímabundnum skýlum. Þau höfðu fjölda nafna allt eftir tungumálum, til dæmis : humpy, gunyah, wurley, mia-mia, og wiltja. Sveigjanlegar greinar úr trjátegundum á borð við tröllatré (eucalyptus) eða akasíu (Acacia) voru beygðar til að mynda grind í laginu eins og hvelfing. Síðan var það þakið þykkum lögum af berki, greinum, laufi eða grasi svo þétt að það hrinti frá sér rigningu. [5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Christian F. Feest (Hrsg.): Kulturen der nordamerikanischen Indianer. Könemann, Köln 2000, ISBN 3-8290-0500-8, S. 97 (Subarktis), 136 (Kuppel- und Kegelform), 322 (Ramada), 328–329 (Paiute).
- ↑ Christian Feest (2005)
- ↑ Bruce G. Trigger (Ritstj.): Handbook of North American Indians. Vol. 15: Northeast, Bls. 658/659. SBN 978-0-16-004575-2
- ↑ Christian Feest (Autor): Wickiup, Wigwam u. Windschirm (Wörterbucheinträge). In Walter Hirschberg (Begr.), Wolfgang Müller (Red.): Wörterbuch der Völkerkunde. Neuausgabe, 2. Auflage, Reimer, Berlin 2005, ISBN 3-496-02650-2, Bls. 410, 412, 413.
- ↑ Memmott, Paul (2007), Gunyah, Goondie and Wurley : the Aboriginal architecture of Australia (1st ed.) University of Queensland Press, ISBN 978-0-7022-3245-9