Viking 2
Útlit

Viking 2 var annað tveggja geimfara sem sent var til Mars sem hluti af Viking-geimferðaáætluninni í umsjá NASA. Farið var samansett af lendingarfari og brautarfari.[1] Markmið Viking-verkefnisins voru að taka myndir af Mars í hárri upplausn, leita að ummerkjum lífs og greina lofthjúp og yfirborð plánetunnar.[2] Farið starfaði í þrjú ár.[3]
Viking 2 var skotið á loft þann 9. september 1975 og fór á sporbaug um Mars þann 7. ágúst 1976. Þann 3. september 1976 lenti lendingarfar Viking 2 á Mars.[2] Lendingin var því önnur heppnaða marslendingin en þá fyrstu átti lendingarfar Viking 1.[1]
Slökkt var á brautarfari Viking 2 þann 25. júlí 1978 en lendingarfarið hélt samskiptum áfram fram að 11. apríl 1980.
Neðanmálsgreinar
[breyta | breyta frumkóða]- 1 2 „Könnun Mars“. Stjörnufræðivefurinn. Sótt 20.10.2026.
- 1 2 Viking Mission to Mars Geymt 21. febrúar 2017 í Wayback Machine NASA (enska)
- ↑ Sævar Helgi Bragason (2023). „Mars“. Stjörnufræðivefurinn.