1353
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1353 (MCCCLIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Gyrðir Ívarsson Skálholtsbiskup og Eysteinn Ásgrímsson munkur héldu af stað í vísitasíuferðir um landið.
- Norðlenskir framámenn sem kvaddir höfðu verið utan á fund konungs komu aftur til landsins með konungsbréf þar sem Ormi Áslákssyni Hólabiskupi var boðið að virða fornan rétt þegnanna og skipað að leysa úr banni þá sem hann hafði bannfært.
- Sáttafundur haldinn í Skálholti á milli Eysteins Ásgrímssonar og Ólafs Bjarnarsonar hirðstjóra, sem hafði látið taka Guttorm bróður Eysteins af lífi. Ólafur sigldi síðan til Noregs og átti ekki afturkvæmt.
- Fædd
- Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 3. mars - Bern gekk í svissneska bandalagið og varð áttunda kantónan í Sviss.
- 27. ágúst - Sameinaður floti Aragóníu og Feneyja vann stórsigur á flota Genúa.
- Svarta dauða talið lokið í Evrópu.
- Marokkóski ferðalangurinn Ibn Battuta fór m.a. til Timbúktú.
- Giovanni Boccaccio lauk við Tídægru.
- Búddíska veldið Lan Xang var stofnað þar sem nú er Laos.
- Fædd
- Margrét Valdimarsdóttir mikla, drottning Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar (d. 1412).
- Dáin
- 2. febrúar - Anna af Bæjaralandi, keisaraynja og drottning Bæheims, kona Karls 4. keisara (f. 1329).
- Símon stolti, stórfursti í Moskvu (f. 1316).