1355
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1355 (MCCCLV í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Vetur var mjög harður og fjárfellir víða um land.
- Gyrðir Ívarsson biskup og Eysteinn Ásgrímsson munkur fóru saman til Noregs. Var biskupslaust í landinu þar til Gyrðir kom aftur ári síðar.
- Andrés Gíslason, hirðstjóri, hélt til Noregs.
- Fædd
- Dáin
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 7. janúar - Alfons hugdjarfi konungur Portúgals lét myrða Inês de Castro, ástkonu krónprinsins Péturs. Pétur hóf þá uppreisn gegn föður sínum.
- 5. apríl - Karl 4. var krýndur keisari hins Heilaga rómverska keisaradæmis í Róm.
- 18. apríl - Marino Faliero, hertogi í Lýðveldinu Feneyjum, var hálshöggvinn fyrir samsæri gegn Minnaráðinu.
- Ágúst -
- Annað skoska sjálfstæðisstríðið: Skotar unnu sigur á Englendingum við Nesbit Moor.
- Magnús Eiríksson smek sagði af sér konungdómi í Noregi þegar sonur hans, Hákon 6. Magnússon, varð fullveðja. Þar með lauk konungssambandi Noregs og Svíþjóðar í bili.
- 5. október - 2. desember - Hundrað ára stríðið: Játvarður svarti prins fór með 4.000-6.000 manna her frá Bordeaux og suður til Narbonne. Herinn kveikti í borgum og rændi verðmætum.
- Ottómanveldið herjaði á Búlgaríu.
- Magnús Eiríksson smek sendi leiðangur til Grænlands til að kanna sannleiksgildi sagna um að Vestribyggð væri komin í eyði. Leiðangurinn sneri ekki aftur fyrr en 1364.
- Fædd
- 16. ágúst - Filippa Plantagenet, dóttir Lionels hertoga af Clarence, ættmóðir York-ættar (d. 1382).
- Dáin
- 7. janúar - Inês de Castro, ástkona Péturs krónprins, síðar Péturs 1. Portúgalskonungs.
- 16. október - Loðvík Sikileyjarkonungur (d. 1355).
- Erlingur Viðkunnsson, ríkisstjóri og valdamesti maður Noregs 1319-1332 (f. 1293).