1356
Útlit
| Ár |
| Áratugir |
| Aldir |

Árið 1356 (MCCCLVI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]- Árni Þórðarson, Jón skráveifa og Þorsteinn Eyjólfsson á Urðum sigldu til Noregs.
- Jón skalli Eiríksson, Grænlandsbiskup, fór til Avignon og fékk páfaveitingu fyrir biskupsstólnum á Hólum.
- Arngrímur Brandsson ábóti á Þingeyrum, sem skipaður hafði verið officialis meðan biskupslaust var á Hólum, var sviptur því embætti vegna ósættis við presta.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- Ormur Ásláksson Hólabiskup dó í Noregi.
Erlendis
[breyta | breyta frumkóða]- 11. janúar - Játvarður 3. Englandskonungur hóf innrás inn í Skotland. Mánuði síðar brenndi enski herinn Edinborg.
- 2. febrúar - Hansasambandið var formlega stofnað í Lübeck.
- 5. apríl - Jóhann 2. Frakkakonungur lét handtaka tíu aðalsmenn og Karl 2. konung Navarra við málsverð í Rúðuborg. Þeir voru andsnúnir frekari fjárútlátum í stríðinu við Englendinga og voru fjórir aðalsmenn teknir af lífi og Karl fangelsaður.
- 10. apríl - Zhu Yuanzhang, kínverskur byltingarleiðtogi sem síðar varð leiðtogi Mingveldisins, náði yfirráðum yfir borginni Nanjing frá mongólska Júanveldinu.
- 18. apríl - England og Skotland gerðu vopnahlé.
- 19. september - Hundrað ára stríðið: Englendingar undir forystu Játvarðar svarta prins unnu sigur á Frökkum í orrustunni við Poitiers og tóku Jóhann góða Frakkakonung höndum.
- 17. október - Eiríkur Magnússon Svíakonungur gerði uppreisn gegn föður sínum, Magnúsi smek.
- 18. október - Borgin Basel í Sviss hrundi í jarðskjálfta. Um 1.000 létust.
- 25. desember - Karl 4. keisari gaf út stjórnarskrá Heilaga rómverska ríkisins.
- Stærstur hluti af kalksteinsklæðningunni á Píramídanum mikla í Gisa var fjarlægður og notaður til að byggja hallir og moskur í Kaíró.
Fædd
[breyta | breyta frumkóða]Dáin
[breyta | breyta frumkóða]- 19. september - Pétur 1., hertogi af Bourbon (f. 1311), lést í orrustunni við Poitiers.